|
![]() ![]()
|
|
© Hlynur Hansen Allur réttur áskilinn, Skorri ehf. |
| Skorri ehf Fyrirtækið var stofnað árið 1978. Í fyrstu rak það rafgeymasölu og ofnaverksmiðju og var til húsa í Ármúla 28. 1979 flutti fyrirtækið í Skipholt 35 og rak óbreytta starfsemi til 1985, en þá hætti það ofnaframleiðslunni. Starfsemin var þá flutt að Laugaveg 180 og árið 1987 að Bíldshöfða 12. Fyrirtækið hefur alltaf selt TUDOR rafgeyma og gerir enn. Þeir voru framleiddir í Svíþjóð en um 1994 keypti EXIDE í Bandaríkjunum Tudor verksmiðjurnar og fleiri raf- geymaverksmiðjur í Evrópu og er nú stærsti rafgeymaframleiðandi í heimi, með mörg vörumerki. Skorri ehf selur allar gerðir þeirra, en það eru: Startrafgeymar til að ræsa vélar, lyftararafgeymar fyrir lyftara og varaaflsrafgeymar fyrir ýmis konar viðvörunnarkerfi. Starfsmenn Tudor hafa haldið mörg rafgeymanámskeið hér á landi fyrir tæknimenn ýmissa fyrirtækja og starfsmenn Skorra ehf hafa skrifað margar greinar um rafgeyma í ýmiss tímarit. Um 1985 hóf fyrirtækið að flytja inn sólarrafhlöður, aðallega fyrir sumarbústaði. Það hefur þróast út í ýmsar aðrar vörur fyrir rafmagnslausa sumarbústaði, t.d. gasvörur, eins og eldavélar, ísskápa og vatnshitara. Einnig er boðið uppá mikið úrval ljósa og rafbúnaðar fyrir 12 volta kerfin, eins og sólarrafhlöðurnar eru. Skorri ehf er umboðsaðili fyrir SUNWIND sem er stærsta fyrirtækið á Norðurlöndum með vörur fyrir rafmagnslausa sumarbústaði. Sólarrafhlöður eru mjög góður kostur til þess að losna við olíu- og gasljós. Engin eldhætta stafar af þeim, en auk þess að framleiða rafmagn fyrir ljós, er líka hægt að hafa sjónvarp í bústaðnum, auk þess vatnsdælu og hlaða farsíma. Við segjum: Komdu í sólina til okkar og vertu þinn eiginn rafmagnsstjóri ! Þann 1. Júní 2007 seldi Örn Johnson Skorra ehf til Smáey ehf eignahlutafélag í eigu Magnúsar Kristinssonar. skorri@skorri.is |
|
Verðlistar Tudor start rafgeymar Stöðu/neyslu rafgeymar Hjóla rafgeymar Hleðslutæki Sólarrafhlöður 12V Ljós og perur Gasvörur (Listi A) Gasvörur (Listi B) GP rafhlöður Tilboð Sunwind Bæklingur |
|
Skorri ehf - Bíldshöfða 12 - 110 Reykjavík - S: 577-1515 - Fax: 577-1517 Opið frá 08:15 til 17:30 alla virka daga. |